Ég er þvílíkt kát yfir því hvað við fengum marga gesti inn á síðuna, það hvatti mig bara til að skella í aðra færslu.
Í kvöld þá ákvað Maddi að gera súpu upp úr nýrri uppskrifabók sem við vorum að eignast sem heitir Heilsuréttir fjölskyldunnar. Það tók smá tíma að gera hana ( ca 1klst) en mest af þessum tíma fór í að brytja niður grænmetið. En hún var þess virði, smakkaðist þvílíkt vel og maður varð vel saddur af henni.
Hollustusúpa – falið grænmeti
Okkar breytingar:
-Þar sem aulinn ég er með ofnæmi fyrir tómötum þá slepptum við þeim, en ekki púrrunni.
-Við notuðum ekki linsubaunir því þær voru ekki til hérna heima, Madda til mikillar gremju því ég hafði farið spes ferð í Bónus að kaupa linsubaunir en labbaði út með tómatsósu og banana.
-Maddi bætti smá Chayenne við súpuna, það gaf henni örlítið kick en var ekki sterk samt.
Gott er að bera þetta fram með soðnu eggi og sýrðum rjóma/grískri jógúrt.
—–
Svona að lokum þá ætlaði ég að henda inn smá tips, fyrst ég var að standa í því á meðan Maddi var að elda.
Ready hvítlaukur
Hérna árum áður þá keyptum við alltaf pakkningu af hvítlauk sem við notuðum lítið af (örugglega bara leti við að afhýða hann) og hann endaði alltaf með því að mygla, varð þurr og gúmmílegur. En fyrir nokkrum árum þá byrjaði ég (ég segi ÉG því ég er sú eina á heimilinu sem nennir þessu) að taka mikið magn af hvítlauk, afhýða, setja í góða tvöfalda poka og inn í frystir.
Þá þegar við erum að elda og ætlum að nota hvítlauk þá tökum við hann út úr frystinum og röspum hann út í matinn. Þetta er þvílíkt þægilegt og smakkast jafn vel og ferskur finnst mér.
Ég tók 12 heila hvítlauka áðan og tók utan af þeim öllum og frysti, ferlið tók ca 1.5 klst en þetta dugar í marga mánuði. Ef maður geymir hann í góðum poka (ég set þá í tvo góða) þá er í lagi að hafa hann í frystinum í svona langan tíma.
Þarf að prófa þessa uppskrift. Ánægð með ykkur að gera svona matar blogg.
Kv. Lóló frænka
Bakvísun: Afmælismaturinn hans Madda! | Nautnaseggirnir