Opinn kjúklingabörger með frönskum úr sætum kartöflum
Kvöldmaturinn í dag varð til að mestu vegna þess að ég nennti alls ekki út í búð, þannig að ég þetta er allt eitthvað sem ég fann eftir að grafa í ísskápnum. Var líka í stuði fyrir einhvern góðan, djúsí mat. Maddi var allaveg mjög ánægður með þetta og sagðist vilja fá þetta aftur!
Opinn kjúklingabörger
- Hveitikím
- Kjúklingabringa
- Hunang
- Hnetur
- Sveppir
- Matreiðslurjómi
- Sætar kartölfur
- Misc krydd
- Hendið hveitikím í skál og kryddið með einhverju góðu kryddi. Ekki salta það en það er gott að setja gott grænt krydd eða pizzakrydd. Bætið síðan smá vatni þangað til að þetta er í fínri þykkt. Svo er þetta steikt á pönnu þangað til þetta er gulbrúnt báðum.
- Kjúklingabringan er síðan tekin og þerruð með eldhúspappír. Hnetur settar í matvinnsluvél og muldar fínt. Svo setti ég ca 1tsk af hunangi á bringuna og smurði á (kjúklingabringuna sko). Veltið svo bringunni upp úr hnetunum og inn í ofn í 40mín við 180°c.
- Takið síðan 1 stóra sæta kartöflu og skerið í frönskur. Húrrið síðan öllu klabbinu í poka, hellið olíu yfir og góðu salti og hristið! Þá á bökunarplötu og inn í ofn í 30-40mín. Hrista upp í þeim nokkrum sinnum á meðan þær bakast.
- Skerið svo sveppina í frekar þykka bita og steikið á pönnu, kryddið með salti og pipar. Þegar þeir eru steikti í gegn, setjið þá slurk af matarrjóma út á og sojasósu. Ég setti sjálf fljótandi nautakraft því sojasósan var búin. Smakkið til og ákveðið sjálf hversu bragðsterkt þið viljið hafa þetta. Leyfið síðan rjómanum að sjóða aðeins niður.
- Setjið þetta síðan allt saman and apply to face!
This slideshow requires JavaScript.