Madda til mikillar gleði þá auglýsti uppáhalds pizzastaðurinn hans pizzur á þúsundkall svo að kvöldmaturinn var ákveðin fyrir hann og littla dýrið, ég ákvað að halda matarræðinu góðu svo ég ákvað að gera eitthvað úr stöffinu heima fyrir. Vildi hafa þau auðvelt svo ég gerði kjúklingaleggi, salat og hafði með couscoussalatið frá því í gærkveldi.
Þetta er kannski ekki uppskrift að kvökdmat heldur hugmynd.
Kjúklingaleggir
Setti hveiti í skál og allskonar krydd eins og salt, pipar og hvítlauksdufti. Hrærið saman og veltið kjúllanum upp úr og inn í ofn í 30mín.
Síðan henti ég smá kál á disk, skar niður melónu sem var á síðasta séns og svo afgangs cous cous frá gærdeginum.