Eggaldin ídýfa og heimagerðar tortilla flögur
Þar sem annar Nautnaseggurinn var að koma úr svaðalegri tannlæknaferð þá voru uppi sérþarfir um snarl. Beiðnin var um eitthvað mjúkt en hollt. Þannig að rétt fyrir miðnætti var byrjað á því að útbúa eggaldinídýfu. Þegar hún var tilbúin áttuðum við okkur á því að það var ekkert til að borða hana með. Svo það var ákveðið að búa til heimatilbúnar tortillaflögur.
Eggaldinídýfa
- 2 Eggaldin
- 6 hvítlauksrif
- 3 msk olía
- 3 msk sítrónusafi
- 1/2 tsk gróft salt
- 4 msk tahini
- 1 tsk paprika
- Skerið raufir í eggaldinið og ýtið hvítlauksrifunum inn.
- Skellið eggaldinu inn í 200°C heitan ofn í 30 mínútur. Snúið þeim þegar tíminn er hálfnaður.
- Þegar eggaldinið hefur kólnað örlítið þá skerið þið í það og skafið kjötið innan úr því í skál.
- Maukið aldinið með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Bætið öllu hinu saman við og maukið örlítið meira.
- Borðið með heimatilbúnum tortilla flögum.
Heimatilbúnar tortilla flögur
- Tortilla pönnukökur
- Olía
- Salt
- Skerið tortilla pönnukökurnar í helming og síðan í „flögu stærðir“.
- Skellið þessu á ofn plötu, hellið olíu yfir og stráið með grófu salti og veltið þeim um með höndunum.
- Skellið inn í ofn í 10 mínútur.
- Þriðja skrefið fór örlítið úrskeiðis hjá okkur. Þegar kokkurinn er vel verkjalyfjaður þá er tímataka ekki hans sterkasta hlið. Svo þegar annar nautnaseggurinn fór inn í eldhús þá heyrðist bara: „MADDI! REYKUR!“. Eitthvað af þessu var alveg ætt en hefði samt verið mun betra ef við hefðum ekki nánast kveikt í þessu.
This slideshow requires JavaScript.
You must be logged in to post a comment.