Ostafylltar kjúklingabringur með silkimjúkri, sætri kartöflumús og salati
Eftir smá pásu hafa Nautnaseggirnir að ákveðið að pæla meira í matnum sem þeir borða. Það er alltaf best þegar maður gerir allt frá grunni og hugsar aðeins um hvað maður setur ofan í sig. En þegar maður dettur í svaka hollustu eftir pásu þá vantar oft alltaf smá sukk með. Þannig að kjúklingabringa, sætar kartöflur og salat verður að:
Fyllt kjúklingabringa með gráðost, velt upp úr pestó og dukkah, silkimjúk sætkartöflumús og salat.
Fylltar kjúklingabringur með gráðost, veltar upp úr pestó og dukkah.
- Kjúklingabringur
- Gráðostur
- Dukkah, má sleppa ef þetta er ekki eitthvað sem kitlar ykkur (þetta er muldar hnetur og fræ ástamt kryddi, fæst í öllum búðum)
- Grænt pestó
- Skerið rauf í bringurnar. Best er að leggja aðra hendina ofan á bringuna og nota hina til að skera (farið varlega!).
- Troðið gráðosti (eða bara einhverjum góðum osti) inn í bringurnar. Mér fannst ekki þörf að sauma fyrir svo ég sleppti því.
- Takið bringuna í aðra hendina og notið hina til að maka pestóinu á hana. Veltið henni svo upp úr dukkah.
- Setjið í eldfast form og inn í ofn í 30-45 mínútur (fer eftir ofninum).
Silkimjúk sætkartöflumús
Ég eldaði með vinkonum mínum um daginn og ein þeirra notaði þessa aðferð við að gera músina. Alveg tryllingslega gott.
- Sjóðið kartöflurnar og látið síðan leka vel af þeim.
- Miðað við mína reynslu þá er ekki hægt að gera þetta nema að vera með töfrasprota eða matvinnsluvél. Bætið 1msk af smjöri fyrir hverja kartöflu út í pottinn/skálina og maukið í drasl!
- Þegar músin er orðin alveg silkimjúk má bæta múskati út í. Magn fer eftir smekk, svo farið bara varlega í þetta.
This slideshow requires JavaScript.
You must be logged in to post a comment.