SveppPepp fylltur kúrbítur
Mig hefur lengi langað að prófa þessa uppskrift, finnst gaman af svona súper einföldum uppskriftum.
Þetta tók ekki langan tíma og má nota hvaða fyllingu sem er, ég ákvað að nota SveppPepp þar sem sterkt pepperóníið kemur vel á móti daufu bragði af kúrbítnum. Þetta var rosalega gott og rosalega seðjandi.
SveppPepp fylltur kúrbítur
Innihald
- Kúrbítur
- Sveppir
- Pepperóní
- Ostur
- Rjómaostur
- Rauðlaukur
- Pizzasósa
- Skerið niður sveppi og pepperóní og steikið á pönnu. Það þarf enga olíu/smjör undir þar sem fitan af pepperóníinu bráðnar og gefur sveppunum frábært bragð.
- Skerið rauðlauk mjög smátt og steikið á pönnu.
- Takið kúrbítinn, skerið endana af og skafið innan úr (ég notaði „melonballer“ en skeið/teskeið virkar jafn vel).
- Ég raðaði upp: kúrbítur, pizzasósa, rauðlaukur, rjómaostur, SveppPepp blanda og ostur.
- Skella svo inn í ofn við 180°c í c.a 20-30 mínútur, fylgjast með.
- Kippið kúrbítnum út, skellið á disk and apply to face!

Frekar ódýrt að kaupa í þessa uppskrift og góðar líkur að maður eigi meirihluta til í ísskápnum sínum.

Saxa SveppPepp

Skafa innan úr kúrbítnum


Hér er pizzasósa og laukur kominn.

Pizzasósa, laukur og rjómaostur.

Pizzasósa, laukur, rjómaostur og SveppPepp blanda.

Gluða svo nóg af osti yfir allt saman.

APPLY TO FACE!
You must be logged in to post a comment.